Gróðrarstöðin Réttarhóll - Sumarblóm 2007







Leitarsíða, til að leita á Sumarblómasíðunni.<-Leitarsíða.

Gróðrarstöðin Réttarhóll, Svalbarðseyri gr@rettarholl.is

Skrá yfir þær tegundir og afbrigði sumarblóma sem eru á sölulista.
Myndir eru af flestum tegundum.





Sumarblóm 2007

Sumarblómin eru seld í 7 cm. boxum og
margar tegundir líka í pottum frá 12 cm. og stærri.
Sumarblóm sem voru til sölu hér vorið 2007. Nú í vetur set ég inn nýjar myndir, til að flíta fyrir mér í vor

Ísl. og latneskt nafn. Afbrigði og litur blóma. Stutt lýsing tegundar.
Skrautnál
Lobularia maritima
(Alissum maritima)

     Á leitarsíðu
'Snow Crystal' Hvít blóm
'Ester Bonnet' Rauðbleik
og 'Violet Queen' purp.fjól.rauð.
Lágvaxin 8 til 15 cm. Mjög blómviljug, ilmandi blóm.
Notuð í kanta og fremst í beð.
Ljónsmunni
Antirrhinum majus
'Sonnet' Blandaðir litir.
'Sonnet' Rauður.
og 'Kimosy Crimson' rauð blóm lægri.
Blómríkur og harðgerður,
Stendur fram á haust.Stendur hér oft með blómum eftir að snjóað hefur. Þolir vel vind.
Fagurfífill
Bellis perenis
'Pompoette' blandaðir litir. 10 til 15 cm. Harðgerð og blómrík tegund, sem lifir oft af veturinn og getur haldið sér við með sáningu í nokkur ár.
Stjörnuglit
Bidens ferulifolia
Bidens humilis

Afbrigðin heita Golden Star
og Pirate's Tre.
Stóð sig vel í pottum hér 2007, var ekki plantað í beð. (skoða síðar.)
Skrautkál
Brassica oleracea var.acephala
Afbrigið sem til er núna heitir 'Attraction'.
Litir eru blandaðir.
Skraulegt afbrigði Grænkáls.
Morgunfrú
Calendula officinalis
     Á leitarsíðu.
'Fiesta Gitana' blandaðir gulir og rauðgulir litir. Hæð 20 til 30 cm.
Einhver harðgerðasta tegund sumarblóma sem völ er á. Stór blóm. Blómrík.
Kornblóm
Centaurea cyanus
'Florence blue'
blá blóm
25 til 40 cm.
Vindþolið og harðgert. Stinnir stönglar.
Silfurkambur
Cineraria maritima
     Á leitarsíðu.
'Silver Dust' ljósgrá blöð.
15 til 25 cm.
Ræktaður vegna litar blaða. Notaður með öðrum litríkari tegundum eða einn sér. Harðgerður.
Meyjarblómi
Codetia grandiflora
'Dwarf Satin' Blandaðir litir.
20 til 40 cm.
Stór blóm. Blómstrar nokkuð seint, en bætir það upp með óvenjulegum glæsileik.
Brúðarstjarna
Cosmos bipinnatus

'Sonata Mix.'
Blandaðir litir, 40 til 60 cm.
Stór Körfublóm, allt að 10 cm. í þvermál. Stinnir stönglar. Blaðfögur. Verður fallegust í góðu skjóli.
Glitfífill - Dalía
Dahlia x cultorum

Afbrigðin, 'Figaro' og 'Diablo Redskin'
20 til 35 cm.
Lýsing á pottablómasíðu.
Er oftast seld í 12 cm. pottum.
Stúdentanellika
Dianthus barbatus

'Wee Willi' blandaðir litir.
15 til 20 cm.
Þetta afbrigði getur lifað nokkur ár úti. Blómríkt og harðgert.
Kínadrottning
Dianthus chinensis
'Persian Carpet' blandaðir litir
20 til 30 cm.
Harðgert sumarblóm. Lifir stundum veturinn úti.
Nellika
Dianthus hybr.(*)
6 nýjar sortir af Nelliku eru nú í eldi, og verða þær seldar í pottum frá 12 cm. Blómin eru hvít,fjólublá,rauð,bleik eða gul. Ýmist einföld eða fillt.
Fuksía - Tárablóm
Fuchsia x hybrida
Sortir með misstórum blómum, og nokkrum litum. Als eru nú 9 mismunandi afbrigði í ræktun. Eitt þeirra hefur verið ræktað hér árum saman, rót þess hefur lifað hér veturinn af. önnur afbrigði eru viðhvæmari en með stærri blóm í ýmsum litum.
Bergflétta
Hebera helix
Blöð með ljósari taumum í miðju.

  Á leitarsíðu.
Klifur eða vafningsjurt, sem getur fest sig sjálf við veggi eða grindur. Þetta afbrigði hefur ekki reynst vel úti, en stendur sig vel í köldum gróðurhúsum.
Annað harðgerðara afbrigði er til.
Sjá runnasíðu.
Mánafífill
Gazania x hybrida
     Á leitarsíðu.
'Daybreak Mix.'
blandaðir litir
10 til 25 cm.
Stór, falleg körfublóm sem eru lokuð í dimmviðri. Hefur reynst ágætlega sem sumarblóm á sólríkum og sæmilega skjólgóðum stað.
Aftanroðablóm
Lavatera trimestris

'Rupy Regis' ljósrauð blóm.
'White Regis' Hvít blóm.
'Silver Cup'
'Dwarf Pink' Ljós bleik blóm.
Stór bjöllulaga blóm. Þarf skjól en er nokkuð harðgert.
Prestabrá - (Margaritta)
Argyranthemum frutescens.
Chrysanthemum
Leucanthemum maximum

Mörg afbrigði eru til með hvítum, gulum, bleikum, rauðum og purpuralitum blómum.Filltum og einföldum. Eins er hæð, litur og lögun blaða mismunandi. Afbrigðin eru ýmist með einföldum eða filltum blómum, oo grænum eða grálitum blöðum. þrífst vel úti yfir sumarð, en fá af þessum afbrygðum lifa veturinn af úti.
Fétoppur
Limonium sinuata

Afbrigðið 'Petit Bouquet'
Blandaðir litir.
Blómin eru góð í þurskreitingar, og geymast árum saman. Plantan þrýfst þokkalega úti yfir sumarið.
Brúðarauga
Lobelia erinus
Lobelia erinus var. pendula

     Á leitarsíðu.
'Crystal Palace' blá
'Rosamunde' rauð

'Regatta Rose' rósrauð. Hangandi.
'Regatta Midnight Blue' dökk blá blóm. Hangandi.
'Regatta White' hvít blóm. Hangandi
'Regatta Mix.' blandaðir litir, hangandi.
Fíngerð planta, notuð í hengipotta eða fremst í beð, eftir afbrigðum. Ein harðgerðasta tegundin í hengipotta.



Brúðarauga er bæði afgreit í sumarblómaboxum (7x7x6) og 12 cm. pottum.
Ilmskúfur
Matthiola incana
'Cinderella Mix.' blandaðir litir.
25 til 35 cm
Skrautleg ilmandi blóm. Harðgerður.
Hádegisblóm
Mesembryanthemum criniflorum
Blandaðir litir.
8 til 15 cm.
Lágvaxin. Blómin í ýmsum litum, lokast ef sólina vantar og ef kalt er í veðri.
Apablóm
Mimulus luteus
'Mystic Mix´ Blandaðir litir.
20 til 35 cm.
Harðgert, blómstrar mikið. Sjálfsánar plöntur geta komið upp á öðru ári, efir gott sumar.
Fiðrildablóm
Nemesia strumosa
     Á leitarsíðu.
'Carnival' blandaðir litir.
'Fire King' rauð blóm
og 'Orange Prins' apelsínugul blóm.
20 til 30 cm.
Skrautlegt. Stendur sig oftast vel.
Bláfiðrildablóm
Nemesia versicolor

'Blue Gem' himinblá blóm.
20 til 30 cm.
Ræktað eins og Fiðrildablóm, álíka harðgert.
Sólboði
Osteospermum

'Ballade' Blandaðir litir. Reynist vel hér í stöðinni, en þarf sennilega nokkuð skjól.
Pelargónía,
Ilmandi Mánabrúður Pelargonium radens
(P.radula)

Blómin ljóspurpurarauð, lítil, nokkur saman í sveip.
Ræktuð vegna ilms blaða.


Á leitarsíðu.
Inniplanta, þolir að hitinn fari niður undir frostmark, eins og reyndar flestar pelargóníur, en ekki frost. Blöðin hrjúf að ofan, margskipt, grágræn á að líta. Blöðin gefa frá sér sterkan ilm, séu þau strokin. Plantan var notuð til að bæta ilm í stofum, víða í Evrópu hér áður fyrr.
Mánabrúður
Pelargónía

Pelargonium zonale

'Orpit mix' ýmsir litir
'Maverick Star' rósrauð.
'Colorama' blandaðir litir.
'Horizon' blandaðir litir.
Getur þrifist úti á skjólgóðum stöðum ef sumarið er gott. Þolir illa langvarandi rigningartíð. Betri í köldu eða lítið upphituðu gróðurhúsi. Þolir ekki frost.
Hengipelargónía
Pelargonium peltatum

'Summer Showers'
ýmsir rauðir og bleikir litir.

'Speedy' blandaðir litir.
Hengiplanta. Getur þrifist úti á skjólgóðum stöðum ef sumarið er gott. Þolir illa langvarandi rigningartíð. Betri í köldu eða upphituðu gróðurhúsi. Þolir ekki frost.
Pelargónía
Pelargonium sp.
Með lítil rauð blóm, sem líta út eins og örsmáar rósir í þéttum klasa. Blómin þorna á plöntuni að lokinni blómgvun. Þarf heldur meiri sumarhita en næstu fyrir ofan. Upphitað gróðurhús eða stofa.
Þurkuð blóm eru góð í þurskreitingar.
Ensk Pelargónía
Pelargonium grandiflorum
Eitt afbrigði til.
Stór ljósbleik blóm með dekkri taumum í miðju.
Á leitarsíðu
Stórblóma Pelargónóur eru viðhvæmar úti, bestar í upphituðu húsi. Þær eru líka viðhvæmar fyrir ofvökvun.
Pelargóníur verða oft hávaxnar og teigðar ef hitinn er of hár, þeim líður best ef vetrarhitinn er 8 til 10 gr.(minni birta, þá lægri hiti.) og Sumarhitinn, frá mars til sept. 15 til 20 gr. Þeim er ýlla við að standa í glugga í sterku sólskini.

Allar pelargóníur þola lágan vetrarhita, 5 til 10 gr. en ekki frost, þá er lítið vökvað.
Tóbakshorn
Petunia milliflora

'Fantasy Mix.'
blandaðir litir.
Smærri blóm en á öðrum Tóbakshornum, en bætir það upp með fjölda blóma. Hefur staðið sig vel hér, ef ekki er mjög votviðrasamt.
Tóbakshorn
Petunia hybr.grandiflora

Aðallega seld í 12 cm. pottum.
'Traum' Blandaðir litir,einföld blóm. Stór einföld blóm. Frekar viðhvæmt, þarf skjólgóðan stað.
Hengi Tóbakshorn
Surfinia
Petunia x h.
24 afbrigði eru í ræktun(sum lík). Ýmsir litir, einföld og fillt blóm. Blómakassar, aðallega með Hengi Tóbakshorni.

Sortir sem hafa áður verið ræktaðar hér hafa staðið sig nokkuð vel í hengipottum hér úti, en þurfa sæmilegt skjól og sólríkan stað.
Miljónbjalla
Petunia hybr.
5 mismunandi sortir eru í ræktun. Hvít, rauð, bleik, og blá blóm. Blöð eru lík blöðum á Tóbakshorni, loðin, en virðast lengri og mjórri. Blómin eru minni, en standa þétt saman, og eru mörg, eins og nafnið segir til um.
Sumarljómi
Phlox drummondii

'Dolly mix.' blandaðir litir.
15 til 25 cm.
Skrautlegt sumarblóm. Hefur staðið sig vel hér.
Álfabikar
Salpiglossis sinuata

'Little Frends' blandaðir litir.
25 til 40 cm.
Stór skrautleg blóm. Þarf gott skjól. Hefur reynst allvel hér, á skjógóðum stað.
Paradísarblóm
Schizanthus x. wisetonensis (hybr.)
     Á leiarsíðu.
'Star Parade' og
'Angel Wings'
Blandaðir litir 15 til 35 cm.
Stendur sig vel í sæmilegu árferði. Mjög skrautlegt. Stendur lengi afskorið í vasa.
Snædrífa
Sutera diffusus

5 sortir eru í ræktun. Blómalitir eru hvítir,bláir,rauðir og bleikir. Þéttur vöxtur, fagurgræn blöð. Mjög blómrík. Notuð í potta og beð.
Flauelsblóm
Tagetes patula

'Red Marietta' tvílit gul og rauð.
'Petite Orange' appelsínugul blóm.
'Champion Red' rauð blóm.
Fremur viðhvæm úti hér einkum í langvarandi bleytutíð, en afbrigði með einföldum blómum hafa flest reynst harðgerðari hér, en þau filltu. Best á frekar þurrum, sólríkum stað.
Dúkablóm
Tagetes tenuifolia
'Signet Lemon' gullgul blóm, og
'Red Gem' óséð enþá, ath.síðar.
Er talið harðgerðara en Flauelsblóm. Fíngerðari laufblöð.
Skjaldflétta
Tropaeolum majus

Hangandi afbrigði,
'Top Flowering' rauð blóm.
'Alaska mix.' blandaðir litir, og
Klifurafbrigðið 'Out of Africa' blandaðir litir.
Einær.Notuð í hengipotta og svalakassa. ágæt til útplöntunar í beð. Harðgerð og blómviljug. Klifurafbrigði eru gróðursett við vegg eða grind.
Er oftast seld í 12 cm. pottum.
Járnjurt
Verbena hybr.
'Qurtz mix.' blandaðir litir.
20 til 30 cm.
Skrautlegt og hefur staðið sig nokkuð vel hér, bæði í beðum og kerjum.
Járnjurt
Verbena speciosa
Verbena canadensis
9 afbrigði eru í ræktun hér nú. Blómin eru blá,ljósblá,fjólublá,hvít,rauð og mis dökkbleik. Verður pottum frá 12 cm.
Hægt að nota í beð og hengipotta.
Stjúpur
Viola wittrockiana
     Á leitarsíðu.
22 afbrigði,
(Nokkur lík)
ýmsir litir.
Flestir þekkja Stjúpurnar. Sjá myndir.
Fjallafjóla
Fjallafjólublendingar

Viola cornuta
Viola x williamsii

'King Henry' blá blóm.
'Splendid Mix' blandaðir litir og
'Splendid yellow' gul, hangandi vöxtur.

Ræktaðar eins og Stjúpur. Bera smærri blóm. All harðgerðar. Hægt að nota í steinhæðir, malarkanta, og í alskonar blómakér. Þroska stundum fræ sem spírar vorið eftir líkt og Stjúpur gera.




 Leitarsíða.  Tengill á leitarsíðu. <- Tenglar á leitarsíðu eru víða á síðunni.






©Réttarhóll.